30mars

Queen ED FRÍ ;)

Eftir margra mánaðarbið eru olnbogamyndirnar hennar Queen komnar!
Hún er A/A í olnbogum og því FRÍ frá öllu olnbogalosi og þar sem mjaðmamyndirnar komu líka FRÍAR (fyrir löngu síðan)... er hún líka FRÍ frá öllu mjaðmalosi.
Hún er fullkomin þessi elska!!

En þetta er svo sannarlega frábær endir á frábærri helgi !!

Kveðjur,
Anna og Queensla

30. mars 2009 klukkan 12:49
Anna Francesca Rosudottir
7 athugasemdir
26mars

Bústaðaferð um helgina;)

Tíminn flýgur svo hratt að ég þurfti að hugsa mig vel um hvaða dagur væri í gærkvöldi þegar ég keyrði heim og bara í dag er allt í einu kominn fimmtudagur!

Í gær þeytti ég bóklegt hringstjórapróf og það gekk alveg ágætlega bara! Við Ágústa fórum fyrst að borða á Nings og það er alltaf svo gaman að skvísast með henni Ágústu minni.

Þetta er búinn að vera ótrúlega gaman að læra að verða hringstjóri. Fyrst fór ég á helgarnámskeið og síðan þeytti ég verklegt próf og núna bóklegt próf og þá er bóklega hlutanum lokið. Núna tekur það við að vera duglegur að vinna á sýningum enda er það alveg virkilega gaman.
Námið er búið að vera samansett og stjórnað af Stefaníu Sigurðardóttur og Þorsteins Thorsteinssonar og stóðu þau sig alveg frábærlega!

Mér er búið að takast það illa að gera það sem ég ætlaði að gera í vikunni enda líður tíminn hrikalega hratt. Ég er búin að vera alveg ofboðslega slæm af astmanum og er komin á sterana aftur...

Það styttist og styttist í að ég fari til Svíþjóðar.... 62 dagar!
Sussie er búin að skipuleggja þetta allt saman hehe, voða spennandi !
Aðalástæða ferðarinnar er náttúrulega að ég er að fara að dæma unga sýnendur á alþjóðlegri sýningu í Österbybruk. En ég ákvað að lengja ferðina mína til að eyða tíma með vinkonum í Svíjaveldinu.

Síðan langar mig rosalega að fara aftur í sumar á sýningu, get reyndar ekki ákveðið neitt fyrr en ég veit hvenær Queen byrjar að lóða og svoleiðis;)
En svo sannarlega spennandi hundaár!

Við Steinar stefnum á að fara út í haust saman og stefnum á að fara til Parísar til systur hans Steinars, mannsins hennar og tveggja dætra!
Það verður alveg æðislega gaman!

En á morgun er ég að fara í stelpuferð í bústað og ég verð í burtu alla helgina! Það verður alveg hrikalega gaman. Elínu Ósk vinkonu minni tókst að draga mig með og Steinar heimtar að ég fari hehe.

Jæja, ætla að drífa mig út með hundana og svo í ræktina!

Kveð í bili !
Anna Francesca
26. mars 2009 klukkan 13:38
Anna Francesca Rosudottir
1 athugasemd
23mars

Mánudagar, klárlega ekki mínir dagar!

Þá er helgin búin... hún var ekki lengi að líða enda erum við búin að vera á Stórhundadögum Garðheima alla helgina!
Garðheimar voru troðfullir af bæði fólki og hundum alla helgina!
Starfsfólk Garðheima og skipuleggjendur Storhundadagana stóðu sig frábærlega og mér heyrust allir vera ofboðslega sáttir!

Queen og Bliss voru með okkur Steinari alla helgina og heilluðu Garðheima gesti upp úr skónum!
Champ var heima í greddukasti! Joy er á hápunkti núna svo að já.... það er ansi fjörugt hérna heima núna!

Við Steinar vorum með bás í Garðheimum þar sem við kynntum Björkis beislin!
Fólk var virkilega áhugasamt og við höfðum gaman að því að spjalla við fólk og segja þeim frá þessum frábæru vörum.
Siðan var Bliss við og við í Retriever básnum og heillaði alla með skotts dilleríinu sínu og landsþekktu kossunum;)

En allaveganna, við skemmtum okkur ákaflega vel og núna tekur það bara við að ganga frá Björkis pöntunum og halda áfram í atvinnuleitinni.

Ég fékk hund í snyrtingu hérna áðan, litla sæta Border Collie blendings stelpu.
Það er alltaf eitthvað að gera í snyrtingunum og það er bara gaman;)

Það fer nú líka að koma að Joy og Bliss að fá bað, blástur og klippingu en ætli ég biði ekki fram yfir lóðarí svona til að hreinsa burt lóðarlíktina úr feldinum í leiðinni.

Svo fer nú að koma að henni Queen að byrja að lóða.. veit hreinlega ekki hvenær hún byrjar enda er hún búin að vera að lóða með mjög misjöfnu millibili.
Eins og flestir vita núna að þá ætla ég að para Queen núna á næsta lóðaríi.
Hún er tegundinni svo sannarlega til framdráttar, það hefur nú sýnt sig og erum við ansi spennt að sjá hvernig got undan henni kemur út. En við ætlum að para hana við Gildewangens Istan.

Þegar það spurðist út að við ætlum að para Queen hefur ákveðin manneskja verið að bera út lygar varðandi mig og einnig Queen... til dæmis að hún sé með ofnæmi... sem hún er svo sannarlega ekki með.
Þessi manneskja er "ræktandi" af Þýskum fjárhundi og er það ótrúlegt hvað hún lætur út úr sér bara til að reyna að upphefja sjálfa sig. Og að hugsa sér að þetta sé fullorðin manneskja sem klárlega hagar sér eins og unglingur sem hrópar á athygli! En auðvitað er hún bara að eyðileggja fyrir sjálfri sér enda kemur alltaf að skuldardögum fyrr eða síðar.

Fólk hefur verið að hringja í mig og spyrja mig út í þetta; hvað ég sé eiginlega að spá með að vera að para Queen, svona illa haldna af ofnæmi. En fólk sem þekkir okkur og Queen veit það vel að Queen er svo sannarlega ekki með vott af ofnæmi og varðandi fóðrun þá gæti hún þess vegna verið á hamstra fóðri og hún myndi fóðrast á því !

En það er svo mikið af liði í þessum hundaheimi á Íslandi sem þrífst á því að bera út lygar og sögur, er að upphefja sjálfa sig á því! Sjálf hef ég verið á milli tannana á fólki í mörg ár, svo að eg leggst nú ekki í þunglyndi yfir þessu kjaftablaðri og þá sérstaklega ekki í þessu tilviki frá ekki merkilegri manneskju en þessari.

En núna þessa dagana fara fram ársfundirnir hjá deildum Hundaræktarfélagsins. Sjálf fór ég á ársfund Retriever deildarinnar og hann fór svo sannarlega ekki eins og margir hefðu óskað en svona er þetta.

Næstu daga ætla ég að fara að einbeita mér að því að dunda mér að heimasíðugerð, þjálfa hundana, sækja um vinnur og reyna að koma Björkis pöntuninni til landsins sem fyrst!! Þolinmæði mín er á þrotum skal ég ykkur segja varðandi að þurfa að bíða eftir næstu Björkis pöntun.
Við erum eins og ég hef sagt ykkur á Retriever námskeiði og það er búinn að vera ansi lítill tími til að þjálfa undanfarið en ég ætla að gefa mér tíma til þess núna.

En svo erum við með ProFormance fóður til sölu 23 kg á 9 þúsund.
Þið getið haft samband við mig í gegn um e-mail ef þið viljið fá poka hjá mér!

Jæja, Elín vinkona var að hringja og við ætlum að skella okkur í hjólatúr með hundana!

Kveð að sinni,
Anna Francesca


23. mars 2009 klukkan 18:58
Anna Francesca Rosudottir
1 athugasemd
16mars

Hlýðni brons prófið um helgina...

Þá er helgin liðin... réttara sagt frábær helgi liðin!

Queen litla þeytti hlýðni brons próf á laugardaginn og þó ég segi sjálf frá þá stóðum við okkur bara fjandi vel.
Hún fékk 165 stig af 180 mögulegum og var stigahæðsti hundur prófs!

Anna og Queen

Hérna koma einkunnirnar hennar...

Skoða tennur - Einkunn 10
Hælganga í taum - Einkunn 9,5
Hælganga án taums - Einkunn 8,5
Liggja úr kyrrstöðu - Einkunn 9
Innkall úr sitjandi stöðu - Einkunn 9
Standa á göngu - Einkunn 10
Liggja kyrr í 2 mín - Einkunn 9
Heildarmat - Einkunn 9

Þetta var fyrsta hlýðni prófið sem báðar ég og Queen förum í. Svo sannarlega margt sem mátti betur fara í æfingunum okkar Queen en æfingin skapar meistarann;)

En þetta getur Queen okkar og svo miklu, miklu meira :D

Kv. Anna og Queenslan!
16. mars 2009 klukkan 11:59
Anna Francesca Rosudottir
6 athugasemdir
07mars

Crufts í fullum gangi og ég heima í fýlu !

Æi ég er ekki búin að vera í rosalega góðu skapi undanfarna daga enda fer núna Crufts fram í Englandi og langar mig svoooo að vera þar! Ég segi alltaf ár eftir ár... ég fer á næsta ári, ég fer á næsta ári en nú skal ég segja ykkur eitt ÉG FER Á NÆSTA ÁRI!!!
Þannig að á þessum tíma á næsta ári verð ég á Crufts... og hana nú!
Á næsta ári ætla ég síðan að vera i nokkrar vikur í Svíþjóð og fara svo á Heimssýninguna í Danmörku 24-27 Júní! Það verður svona afmælisgjöf frá mér til mín hehe;)

En það sem léttir mér í lund er jú yndislegi maðurinn minn og hundarnir okkar!
Við erum búin að vera dugleg að þjálfa hundana og eyða yndislegum tíma með þeim!
Eins og glöggir lesendur hafa séð þá erum við Queen skráðar til hlýðni Brons prófs næstu helgi og erum við bara nokkuð duglegar að æfa okkur;) Hlökkum til að spreyta okkur næstu helgi!
Þetta er fyrst og fremst æfing fyrir mig enda hef ég aldrei tekið þátt hlýðni prófi áður.
Eina hræðslan hjá mér er að Queen fari að taka upp á því að lóða svona 10 mínútum fyrir próf eins og henni einni er lagið!
Talandi um lóðarí þá byrjaði Gleðin... eins og Þórdís mín kallar hana Joy að lóða um 9 leitið í morgun. Champ sýndi henni mikinn áhuga allt í einu í morgun og ég var ekki lengi að stökkva og ná í eyrnapinna og tróð honum í pjölluna á henni og jú jú... hún er orðin aldeilis þrútin og Joy formlega farin að lóða í fyrsta skipti á ævinni. Ég reikna þó ekki með að halda veislu henni til heiðurs að vera orðin "kona" en við fögnum þessu þó enda alltaf gott þegar tíkurnar eru búnar að lóða í fyrsta skipti.

Eins og ég sagði ykkur áður þá erum við á frábæru Retriever námskeiði hjá Alberti Steingrímssyni með Joy og Bliss.
Reyndar fórum við ekki með Joy í morgun enda ekki hægt að bjóða ferfættum karlkyns þátttakendum upp á vel lyktandi skvísu sem myndi hiklaust hafa mjög neikvæð áhrif á þeirra frammistöðu á námsskeiðinu.

En við fórum með Bliss í morgun og er hún að bæta sig með deginum sem líður! Hún er bara aðeins of mikið fiðrildi með vott af athyglisbresti.

Við erum búin að vera dugleg að æfa hérna heima milli kennslutíma og tókum við myndir um daginn og á ég til með að sýna ykkur þær;)
Joy og Steinar

Joy að halda í dummy

Joy

Anna og Bliss

Anna og Bliss

En aftur að Crufts þá er ég búin að vera að fylgjast með úrslitunum með beinni útstendingu á www.cruftslive.com og verð ég að segja ég hef ekki verið neitt svakalega heilluð af þeim hundum sem hafa birst í úrslitum.
Finnst hundarnir oftast vera alveg ömurlega illa sýndir, sýnendurnir að draga úr gæðum hundana með fáránlegum hlaupastíl.
Hundarnir sem komnir eru áfram og keppa í best in show eru papillon, sealyham terrier, ungversk vizla, poodle og pharao hound. Ég fylltist samt sem áður af sænsku stolti þegar ég sá pharao houndinn enda hundurinn og sýnandinn sænskur og kemur svo sannarlega með mikið Show þegar hann hleypur inn í hringinn.

Það er búið að uppfæra www.vinnuhundar.com undir fréttir!

Jæja, hef það ekki lengra í bili!
Kv. Anna Panna!

07. mars 2009 klukkan 20:44
Anna Francesca Rosudottir
4 athugasemdir
05mars

Sýningin...

Sýningin liðin og flest komið í eðlilegt horf... eða það vona ég allaveganna!

Eg lagðist samt sem áður í heljarinnar flensu eftir sýninguna, hálsbólga, hiti og inflúensa var það heillin og má segja að líf mitt sé búið að snúast um svefn og aftur svefn undanfarna daga!

Öll síðasta vika fór í undirbúning fyrir sýninguna, sækja bikarana, sækja um meistaratitla, klippa Joy og Bliss, baða nokkra Schafera og svo mikið meira!

Á föstudagskvöldið byrjaði svo sýningin með keppni ungra sýnenda og síðar um kvöldið tók ég verklegt hringstjórapróf.
Ég var fyrst til að taka prófið og gat ég því drifið mig strax á eftir að klára að hafa til þá hunda sem ég átti eftir að grooma fyrir laugardaginn.
Schäferarnir voru síðan sýndir á laugardagsmorgninum og sýndi ég nokkra rakka fyrst áður en ég sýndi Queen. Það gekk alveg óvenju illa. Hundarnir höguðu sér illa og ég var mjög illa upplögð. Oftast nær helst þetta bara í hendur!
En ég var ekki lengi að komast í gott skap þegar ég fékk Queen mína í hendurnar.

Queen keppti í stórum opnum flokki og gerði sér lítið fyrir og vann hann með excellent og meistaraefni.
Hún keppti síðan um bestu tík og varð 3 besta tík með vara-cacib.
Ég var himinlifandi með þessi úrslit að sjálfsögðu!

Við fórum inn á með Gunnarsholts ræktunarhóp og síðan afkvæmahóp undan Gunnarsholts Joop (pabba Queen) og báðir hóparnir urðu í öðru sæti í úrslitum yfir ræktunar- og afkvæmahópa dagsins.

Eftir sýninguna var svo að sjálfsögðu pöntuð pizza og hún var étin með hraði enda mæðgurnar Linda og Elsa stórvinkonur mínar á leiðinni með Aþenu Leonberger í bað, blástur og klippingu.
Ég var í rúma 4 og hálfan tíma með Aþenu, orðin verulega þreytt en jiii hvað ég var ánægð með mig þegar ég var búin með Aþenu því að hún kom alveg svakalega vel út nýklippt og fín.

Á sunnudagsmorgninum böðuðum við síðan Joy, Bliss og Champ.... hreinlega af því að ég hafði ekki orku til þess kvöldinu áður. Ég var búin að klippa Joy og Bliss svo að það var bara smá fínpússun eftir.

Joy og Bliss kepptu í ungliðaflokki enda svoddan hvolpalingar ennþá;)
Bliss sýndi sig ekkert sérlega vel á hreyfingu, var að hoppa yfir límbandið og var með hvolpalæti.
Joy hinsvegar sýndi sig eins og hún hefði aldrei gert neitt annað og vann flokkinn.
Báðar fengu þær SNILLDAR umsögn, excellent í einkun og meistaraefni.

Þær kepptu síðan við meistarann (Heklu) um bestu tík tegundar. Hárlausa Joy varð besta tík tegundar með meistarastig en of ung til að fá Cacibið!
Fiðrildið hún Bliss varð 3 besta tík á eftir meistaranum.

Joy keppti síðan við besta rakka tegundar og hafði hún betur að sinni sem þýddi að hún var orðin Besti hundur tegundar á vorsýningu 2009 ! Dramatískt ég veit ! En mér er alveg sama... Við erum alveg í skýjunum;)

Joy

Steinar sýndi síðan Champ og fékk hann excellent og fínan dóm. Hann varð 2 besti rakki tegundar á eftir Arkan sem er rosalega flottur strákur.

Ég sýndi Boxerana fyrir vinkonu mína Unni Hagalín og auðvitað rúlluðu hundarnir frá henni þessu upp.
Nóbel, rakkinn sem ég sýndi vann sinn flokk. Chocco varð besti hundur tegundar og systir hans hún Sally varð besta tík tegundar. Við Sallý náum alltaf svo vel saman og okkur finnst svo gaman að skottast í sýningarhringnum saman ;)
Ég heimtaði síðan að Unnur færi með gengið sitt í ræktunarhóp og gaf hún eftir á endanum.
Ræktunarhópurinn hennar fékk síðan heiðursverðlaun og enduðum sem 3 besti ræktunarhópur sýningar!
Mætum klárlega sterk inn næst... með örlítið æfða hunda hehehe!

Ég fór síðan með Joy í grúppu úrslit.... ekki með neinar vonir um að lenda í sæti enda hún svo ung ennþá og tala nú ekki um hárleysið!

Lance hennar Bryndísar hafði orðið besti hundur tegundar hjá Amerískum Cocker fyrr um daginn svo að Joy og Lance skottuðust saman í grúppu 8 úrslitum.

Það varð nú eiginlega bara þannig að þegar þulurinn kallaði upp sætin eitt og eitt og allt í einu voru Lance og Joy orðin ein eftir og aðeins 2 sæti eftir! .... Dramatískt ég veit!!
En að sjálfsögðu hafði Lance betur og við Joy voru sko mikið meira en sáttar með annað sætið ;)

Nú vona ég að leiðin fyrir Joy og Bliss sé bara upp á við!! Þær fara að fá feldinn sinn aftur og þroskast og dafna með tímanum;)

Eftir sýninguna drifum við Steinar okkur heim enda ég orðin sárlasin og kúrðum við okkur bara í kotinu okkar með þreyttu hundunum okkar, hrikalega sátt með daginn!

Jæja, kveð að sinni...
Anna Panna lasarus!

05. mars 2009 klukkan 23:19
Anna Francesca Rosudottir
2 athugasemdir
20febrúar

Allt að verða klárt ;)

8 dagar í sýningu, sýningarnúmerin eru komin í hús og allt að gerast Laughing
Ég er komin með schnilldar sýningarskó og keypti meira að segja eitt par handa Þórdísi því að ég dásamaði þá svo mikið hehe!
Í gær verslaði ég mér síðan svartan sýningarjakka í Debenhams og ætlaði bara rétt að kíka inn í Zöru... haldiði ekki að ég hafi bara fundið annan geggjaðan sýningarjakka!... og ég tók hann frá ;)

Á mánudaginn ætla ég síðan að fara í klippingu og litun og pæjast aðeins við sjálfa mig!

Mamma er komin í bæinn og á hún eftir að dekra eitthvað við barnið sitt líka;)
Hún er alltaf að reyna að halda í mig og mér finnst það bara notalegt Wink

Í gær var alveg hrikalega mikið að gera hjá mér! Var að vinna til 12 á hádegi, fór síðan í ræktina og spriklaði þar í klukkutíma með henni Erlu Sif minni og svo skelltum við okkur í sund og við syntum heilar 40 ferðir... svaðalegur dugnaður!
Síðan dreif ég mig í bæinn og tók Joy óþekktaranga með mér því að Ágústa ætlaði að passa hana fyrir mig meðan ég væri í skólanum. Ég held bara að Diezel hafi passað Joy miklu meira en Ágústa því að hann var í skýjunum með Joy sína! Einhver sem nennti að leika við hann hehehe!

Við Ágústa fórum síðan á American Style og ég fékk mér að sjálfsögðu kjúklingasalat .... voða dugleg! Á meðan að ég þurfti að horfa á Ágústu smjatta ofan í sig djúsí hamborgara!! En mér fannst það alveg ótrúlega lítið erfitt!

Síðan fórum við í Smáralindina og versluðum aðeins og pæjuðumst!

Við Joy fórum síðan í sýningarþjálfun á vegum PMF deildarinnar og litla óþekktin stóð sig alveg ótrúlega vel!!!
Varð eiginlega bara hálf hissa hehe;)

Á morgun leigði ég síðan reiðhöll undir Gunnarsholts Schaferana. Sýningarþjálfunin byrjar klukkan 14 og er í Gusti. Ég ætla að bjóða þeim sem þurfa á að halda klóaklippingu og leiðbeiningar varðandi snyrtingu á hundunum fyrir sýninguna. Þetta verður rosalega gaman;)

Fyrir sýningarþjálfunina erum við að fara á Retriever námskeiðið með Joy og Bliss... brjálað að gera ;)

Jæja best að halda áfram að vinna;)

Kveðja,
Anna Francesca
20. febrúar 2009 klukkan 09:52
Anna Francesca Rosudottir
5 athugasemdir
16febrúar

Mér finnst rigningin góð... daddararara ;)

Þá er maður ný kominn inn úr rigningunni, búin að skella mér í yndislegu náttfötin mín, undir sæng að kúra með Champ og Queen. Joy og Bliss fá nú bara að liggja á gólfinu þar sem þær eru alveg HUNDBLAUTAR!

Eftir ræktina skellti ég mér með þær eina og eina í einu í hjólreiðatúr um bæinn og mikið fannst þeim það gaman... og mér að sjálfsögðu ;) Ég fer ekki oft með þær að hjóla enda eru þær svo ungar ennþá en gaman að gera þetta við og við, stutt í einu.
Joy vildi hins vegar bera tauminn bara sjálf og skildi ekkert í mér afhverju ég leyfði henni það ekki !
Hún vill bera allt eins og sannur Retriever!

Ég var í dag... eins og aðra daga í þessum mánuði bara að vinna til 12 og skelltum við okkur hjúin með Will og Grace (Champ og Queen) út á sanda í boltaleik og fórum svo á Selfoss í heimsókn til ömmu hans Steinars.
Ég gerði nú heiðalega tilraun til þess að finna mér sundbol því að ég er búin að vera svo dugleg að fara í sund undanfarið og synda. Fór meira að segja klukkan 7 í morgun og synti eins og herforingi þangað til að ég neyddist til að fara upp úr til að fara í vinnuna.
En sundbolaleitin gekk ágætlega fyrir utan að ég hreinlega týmdi ekki að borga 8.900 krónur fyrir einn sundbol !!!
Ég verð bara að halda áfram að synda í bikiníinu!

Mér tókst hinsvegar að finna mér sýningarskó ;) Og þessum ætla ég að halda sem sýningarskóm og ekki ganga í þeim dagsdaglega!
Ég var að finna til dragtirnar mínar og ég bara segi ekki annað en að mig langar ekkert að vera í þessum pokalegu drögtum!
Ég á eitt sýningar átfit sem ég ætla að sýna flattana í og jafnvel Champ. En mig vantar sýningarátfit til að sýna í! Schaferana og Boxerana! Verð greinilega að fara að spæjast í Reykjavíkinni... eins og hvað mér finnst það leiðinlegt!
Einhverjar hugmyndir?

Í dag skráði ég okkur Queen í hlýðni próf sem er haldið í næsta mánuði... nú er bara að fara að æfa ;)

Kvöldið fer nú í að klára ókláraða tölvuvinnu og ekki veitir af að ryksuga hérna yfir gólfið... en það má bíða heheh!

Kveð að sinni !
Anna Francesca

P.s. Vinnuhundar.com var uppfærð í gær ;)

16. febrúar 2009 klukkan 20:24
Anna Francesca Rosudottir
3 athugasemdir
14febrúar

Ekki dauð mínúta í mínu lífi...

Það er spurning um að fara bara að hætta þessu blogg standi þar sem ég gef mér rosalega sjaldan tíma til þess!

Ég hef svo mikla tjáningarþörf eins og fólk sem þekkir mig veit og þetta bloggstand er nefninlega góð leið til að tjá sig!
Núna er semsagt tjáningarþörfin í hámarki og er ég því sest í sófann með fartölvuna á lærunum og horfi á Spiderman með öðru auganu og blogga með hinu ;)

En brátt fer að líða að hundasýningu og segir niðurtalningin hérna á síðunni minni að það séu 15 dagar í hundasýningu... sem er svo sannarlega stuttur tími!
Hundarnir líta bara vel út en Joy og Bliss ákváðu að byrja að fara úr hárum í vikunni... hrikalega skemmtilegar við mömmu sína! Queen væri nú trúandi til þess að taka upp á svona löguðu 10 mínútum fyrir sýningu og vera orðin gersamlega hárlaus á sýningardegi! Champ er bara venjulegi Champ, stór og sterkur strákur sem kúrir upp í sófa.

Það eru semsagt allir okkar hundar skráðir á sýninguna og svo er bara að sjá hvort við förum með alla.

Dagskráin kom út í vikunni og hittust svolítið á hjá mér svo að ég næ ekki að sýna allt sem ég vildi sýna en svona er þetta víst!!

Ég er byrjuð að vinna bara hálfan daginn á leikskólanum, það er ekki meiri vinna í boði heldur en það þessa stundina en það er betra en ekki neitt.
Það er alveg hrikalega gott að vera að vinna svona bara hálfan daginn en spurning hvernig það verður til lengdar.
Ég hef meiri tíma fyrir Steinar, hundana og sjálfa mig þessa dagana og nýt ég þess til fulls.
Ég er dugleg í ræktinni, fór til dæmis í dag og synti 30 ferðir eftir að hafa spriklað hressilega í ræktinni.

Skólinn er byrjaður á fullu og er ég í skólanum frá 16.15-19.15 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Ég er búin að læra svakalega mikið og ætla mér að verða rosalega klár í vefsíðuhönnun.
Skólaandinn er greinilega kominn yfir mig og er ég búin að skrá mig á námskeið í sænsku og ítölsku fyrir lengra komna... en ég veit ekki alveg hvenær ég byrja í því. Veltur eiginlega bara allt á því hvenær næsta námskeið er.

En þessa dagana er ég mikið á sýningarþjálfunum!
Ég mæti alltaf á sýningarþjálfun hjá Veiðihunda, Schnauzer og Smáhundadeildinni á þriðjudögum og er mjög ánægð með þá þjálfun! Þá er ég að æfa hann Nóbel sem er Boxer frá vinkonu okkar Unni Hagalín!
Yndislegur hundur sem ég hlakka mikið til að sýna!
Á fimmtudaginn síðastliðinn mættiég á sýningarþjálfun hjá PMF deildinni og æfði hana Bliss litlu.
Hún var hjá ömmu meðan ég var í skólanum og svo bauð Hela frænka mér út að borða og skellti ég mér síðan á sýningarþjálfunina.
Amma var hrikalega hrifin af henni Bliss enda Bliss alveg einstök og skilur ekkert hjarta eftir ósnortið!

Þessa dagana er eiginlega hver dagur hjá mér full skipulagður enda með mörg verkefni í eldinum og finnst það hrikalega skemmtilegt!

Það eru komnar dagsetningar á næstu vinnupróf sem Vinnuhundadeildin stendur fyrir og ætlum við Queen að skella okkur í næsta próf.
Við þurfum líka að vera duglegar að æfa og hlakkar mig alveg ofboðslega til þess að byrja að æfa aftur á fullu enda finnst mér ekkert eins skemmtilegt og að æfa hana vinnuglöðu Queen mína!

Við erum á fullu á Retriever námskeiði með Joy og Bliss sem gengur bara vel.
Fyrir okkur er þetta algjörlega ný tegund af þjálfun enda algjörir nýliðar í Retrievernum.
Við tökum þessu opnum örmum og finnst þetta æðislega skemmtilegt ... og ekki síður Joy og Bliss!

Undanfarið er ég búin að vera dugleg að rækta sambandið við vinkonur mínar og fjölskyldu enda skiptir það svo miklu að eiga góða að!
Um páskana ætlum við Steinar og hundarnir að fara á Höfn í Hornafirði og eyða páskunum hjá múttu gömlu og hundunum... og mikið ofboðslega hlakka ég til !

Síðustu helgi var ég á hringstjóra námskeiði á vegum Hundaræktarfélagsins og var mjög ánægð með það námskeið.
Ætla mér að fara að vinna meira á sýningum og hvet alla til þess!
Á laugardagskvöldið fór ég til Bryndísar og áttum við algjört stelpukvöld!
Horfðum á sjónvarpið, borðuðum saman, átum nammi en enduðum að sjálfsögðu á því að baða og blása hundana heheh!

Í gærkvöldi eyddum við kvöldinu með yndislegum vinum okkar Elínu, Ása, Ingvari og Katrínu. Við spiluðum hrikalega skemmtilegt spil og við stelpurnar drukkum hvítvín. Hrikalega gaman... en allar gjörðir hafa afleiðingar og vaknaði ég þunn í morgun! Það batnaði hinsvegar þegar Steinar færði mér... óumbeðin hafragraut, appelsínusafa og vítamínin mín í rúmið!

Í kvöld eldaði Steinar síðan dýrindis máltíð handa mér og þriðja hjólinu honum Billa.
Ég tek það fram að við erum ekki svona Valentínusardags aðdáendur og var þetta ekki í tilefni þess dags!
Þið eruð að velta kannski fyrir ykkur hver þessi Billi er og afhverju hann er kallaður þriðja hjólið.
Billi og Steinar hafa verið bestu vinir frá æsku og eru Billi og Steinar saman á hverjum einasta degi.

En tíminn líður alveg svakalega hratt og á morgun byrjar ný vika!
Eins og allar aðrar vikur þá er sú næsta full skipulögð!

Morgundagurinn fer í að svara eeeldgömlum ósvöruðum e-mailum, hreyfa hundana, ganga frá Björkis pöntunum og fara svo í sýningarþjálfun!

Kveð að sinni,
Anna og hundahópurinn ;)

14. febrúar 2009 klukkan 23:52
Anna Francesca Rosudottir
2 athugasemdir
27janúar

Hitt og þetta.... aðallega þetta!

Þið eruð búin að vera svo frábær að vera dugleg að kommenta.... en ég alveg hrikalega ódugleg að blogga!
Svo að núna... bæti ég upp úr því !

Ég er búin að vera heima með æluna í dag.... hlaut að koma að þessu þar sem allir í vinnunni; bæði börn og samstarfsmenn eru búnir að fá æluna nema ég!
En annars eru hundarnir svo sannarlega ánægðir með að hafa mömmu sina heima og kúra bara upp í rúmi hjá mér! Champ er búinn að vera klessur upp við mig og Queen liggur í stæðinu hans Steinars og smellir á mig kossum svona við og við.
Arwen kúrir inn á skrifstofu hjá Steinari og kemur og tékkar á okkur við og við og skellir á okkur Champ kossi.
Joy og Bliss... eru bara alltaf í svo miklu stuði og haldast því ekki lengi í kúrustuði hehe!

En um helgina var svo sannarlega rólegheitis helgi. Ég bauð Steinari út að borða á Caruso á föstudagskvöldið í tilefni að bóndadeginum og við enduðum á svona Double Date-i þar sem við hittum óvænt Guðnýju og Hjalta þar.

A laugardaginn var svo vaknað snemma og héldum við í borg óttans á Retriever námskeið hjá Hundaskóla Hundalífs.
Vá hvað við Steinar þurfum að vera duleg að æfa núna hehe!
En vikan líður bara svo hrikalega hratt að áður en maður veit af er komin helgi aftur!

Á sunnudaginn fórum við í yndislega göngutúra með hundana og fór ég síðan á sýningarþjálfun í Reykjavíkinni.
Ég kom reyndar við fyrst hjá Bryndísi enda hrikalega langt síðan ég sá hana síðast!
Við fórum svo saman á sýningarþjálfunina og ég æfði hana Dís sem ég er að fara að sýna. Svo fórum við Bryndís aftur á Álftanesið og við sátum og blöðruðum til ellefu um kvöldið.

En í næstu viku er ég að byrja að vinna bara hálfan daginn... það verður alveg hrikalega skrítið en í rauninni ekki því að það er alltaf svo brjálað að gera hjá mér að ég kem ekki nærri því miklu í verk hjá mér eftir venjulegan vinnudag.
Núna get ég farið að huga almenninlega að heilsunni og eytt meiri tíma með hundunum og kallinum!

Svo er annað í fréttum að ég er að fara að setjast á skólabekk... Búin að skrá mig og það er áætlað að námið byrji á morgun!!
Ég er að byrja í Tölvu og viðskiptaskólanum og ætla þar að læra vefsíðugerð!

Talandi um vefsíður þá erum við alltaf að bæta við okkar vefsíðu og á hún eftir að verða enn flottari þegar allt er komið inn ;)

Svo er mikill tími búinn að fara í að gera www.schafer.is betri og er komið mikið magn a fróðleik inn á hana um Schäfer!
Þessi vika er síðasta vikan sem hægt er að skrá á hundasýninguna og erum við að sjálfsögðu búin að skrá liðið okkar ;)

Kveð að sinni...
Anna og kúruhundarnir;)

27. janúar 2009 klukkan 18:30
Anna Francesca Rosudottir
3 athugasemdir
22janúar

Það sem á daga mína hefur drifið....

Það er hreinlega ekki hægt að vera latari en ég akkurat núna!
Ég kom heim úr vinnunni og lagðist upp í rúm og er þar ennþá!

Málið er að ég er búin á því gersamlega, búið að vera mikill þeytingur á mér undanfarið og hrikalega mikið stress!
Mér líður eins og líkaminn á mér sé að segja bara "Anna Stopp!!"

Ég missti náinn fjölskyldumeðlim í síðustu viku eftir stutta baráttu við krabbann og kvöddum við hann í gær við fallega athöfn í Grafarvogskirkju. Þetta var alveg hræðilega erfitt og ósanngjarnt og er okkur mömmu búið að líða virkilega illa.
Ég ákvað að fara til mömmu á Hornafjörð yfir helgina og eyða tíma með henni og hundunum.
Það var alveg rosalega gaman á Hornafirði og vona ég að ég fari fljótlega aftur.

Mamma er með 2 litlar hvolpaskvísur sem eru vægast sagt frábærar og tók ég nokkrar myndir yfir helgina sem mig langar að sýna ykkur.
Ég og mamma

Ég og mamma

Sprunga og Skriða

Sprunga

Sprunga

Skriða

Sprunga

En þetta eru allaveganna Heimskauta Vatnajökuls Skriða og Heimskauta Vatnajökuls Sprunga og eru þær 9 vikna.
Þær eru í aðlögun á nýju heimilunum sínum núna og halda nýjum eigendum án efa við efnið hehehe!

Svo kom hann Felix úr einangrun um helgina og fór ég á Skagann strax eftir að ég lennti á Reykjavíkurflugvelli til að knúsa drenginn! Hann er með eindæmum fallegur og dásamlegur! Þvílíkt skemmtilegur karakter!
Ég ætla að renna á Skagann næstu helgi og tek nokkrar myndir af drengnum fyrir ykkur.

Svo er ég bara búin að hafa af ýmsu að snúast... er soldið að skrifa "greinar" ýmist fyrir heimasíðuna hjá Dísu minni og annað. Dísa flutti heimasíðuna sína yfir á www.schafer.is og er fullt, fullt af fróðleik þar að finna!

Dísa er búin að opinbera það á heimasíðunni sinni að við ætlum að para Queen næsta vor með Istan.
Það verður hrikalega gaman að sjá hvað kemur enda snilldar einstaklingar bæði tvö!!

Við erum búin að fá út úr mjöðmunum á Queen eins og ég hef sagt áður og er hún HD FRÍ. Hundaræktarfélaginu tókst að týna olnbogamyndunum þannig að við erum ennþá að bíða eftir þeim.... (lesist með pirruðum tón)

Maður vill gera allt svo vel og syna gott fordæmi en það er svo margt sem er engan veginn að hjálpa manni!
Queen er löngu tilbúin í hlýðnipróf .... en engin próf eru í boði eins og er.
Hún er búin að fara í sporapróf og stóðst hún það að sjálfsögðu og stefnum við hærra næst.
Skapgerðarmat verður... kannski.... haldið í sumar og fer hún að sjálfsögðu í það ef það verður haldið. Hún er búin að vera á biðlista í langan tíma núna.
Svo má ekki gleyma því að ekki yngist Istan og ekki vil ég missa af honum enda hinn fullkomni hundur í mínum augum.
Maður veit aldrei hversu lengi sundkarlarnir (lesist sæðisfrumurnar) eru sem duglegastir.

Æi það er bara svo margt að vinna á móti manni og ég vona að ég nái að gera sem mest með henni fyrir lóðarí!
Hún ætti samkvæmt öllu að lóða eftir sirka 4 mánuði aftur.

Á laugardaginn erum við svo að fara á Retriever námskeið hjá Alberti vini okkar með Joy og Bliss og hlakkar okkur mikið til að byrja!

Steinar fór í bæinn í dag og skráði gengið á sýninguna og borgaði félagsgjaldið fyrir okkur.
Ég er að sýna nokkra "auka¨hunda eins og vanalega og lýst mér bara mjög vel á þá sem ég er að sýna á þessari sýningu.
Þetta verður voðalega gaman og vona ég að dagskráin komi sem best út!

Svo ætlum við Þórdís vinkona að skella okkur á hringstjóra námskeið sem verður í febrúar. Það verður voðalega gaman og hlakka ég til að fara á þetta með Þórdísi enda skemmtum við okkur alltaf svo vel saman.

Annað er í fréttum að ég er á svona námskeiði sem heitir Áskorun og er það svona eins og Boot Camp.
Ég geng um gólfin þessa dagana eins og ég sé með eitthvað upp í óæðri endanum því að ég er með svo þvílíkar harðsperrur að það er ekki venjulegt..... og svo er maður að borga fyrir þessar pyntingar!!!
Góða við þetta að þetta er bara mjög gaman og maður hefur svo sannarlega gott af því að hreyfa svona á sér rassgatið og mega ekki hlusta á sjálfsvorkunina í sér.

En jæja, húsið hrikalega skítugt eitthvað og hundarnir óbaðaðir og klipptir... bóndadagurinn á morgun!
Best að fara að rífa sig á fætur og standa sig í húsmóðurstörfunum ;)

22. janúar 2009 klukkan 18:54
Anna Francesca Rosudottir
6 athugasemdir
12janúar

www.vinnuhundar.com er komin í loftið ;)

Mikið skelfilega er ég orðin léleg að blogga! Þetta stafar af miklum önnum og bara hef ég hreinlega ekki haft tíma til að setjast niður og blogga upp á síðkastið!

En hvað er ég búin að vera að gera svona mikið....

Jú, jú heimasíðan okkar kom í loftið í gærkvöldi !
Erum hrikalega stolt og ánægð með síðuna!
www.vinnuhundar.com


Ætla að halda áfram að blogga eitthvað áfram ef fólk hefur áhuga á að lesa bloggið áfram.

Síðan þarf maður jú að sinna heimili, vinnu og fjölskyldu. Steinar er á fullu að skrifa ritgerðina og á fullu í ræktinni... orðinn svaka massaköggull hehe ;)
Vinnan gengur vel, er með vinnu svona mánuð og mánuð í einu en er sátt meðan ég hef vinnu ;)

Hundarnir hafa það hrikalega gott! Queen var að klára að lóða og við getum farið að anda léttar!
Ég er búin að vera að þyngja Queen aðeins upp á síðkastið, Dísa sagði mér að hætta að hreyfa hana svona mikið í lausahlaupi og fara að byggja hana betur upp. Henni fannst Queen eitthvað mjóhundaleg hahaha!
Æi hún er bara seinþroska þessi elska en er öll að koma til núna enda búin að vera í svaka prógrami með hana ;)
Það er komið í ljós að Arwen er ekki á leiðinni til Beggu í Sviss því að Dobermann hundar eru bannaðir þar sem hún býr og er hún Arwen því að leita að heimili.
Arwen er algjört gull af hundi og myndi ég svo sannarlega vilja bara að við ættum hana sjálf en því miður get ég ekki boðið hinum hundunum upp á það meðan við erum í svona litlu húsnæði.

Felix er að koma úr einangrun á fimmtudaginn og förum við Dísa að ná í drenginn okkar á fimmtudaginn! Hlakka hrikalega til að fá að sjá hann!

Á föstudaginn vinn ég svo til hádegis og svo kemur mamma að sækja mig og ég ætla að fara með henni á Höfn og vera hjá henni yfir helgina. Það verður hrikalega gaman og gott að vera í mömmu koti í nokkra daga.
Er farin að sakna hundanna alveg skelfilega svo að þetta verður gaman.

Við erum að byrja á Retriever námskeiði með Joy og Bliss og byrjar það á laugardaginn en þar sem ég er í burtu.... aldrei þessu vant þá missi ég af fyrsta tímanum. En þessi fyrsti tími verður bara svona undirbúningstími og kynningartími svo að ég missi ekki af svo miklu. Svo verður að sjálfsögðu mætt í veiðipróf þegar þær eru tilbúnar :D

Sýningarþjálfanirnar eru byrjaðar á vegum Unglingadeildarinnar og ég ætla að mæta á sunnudaginn eftir næstu helgi með einhvern af þeim hundum sem ég er að fara sýna. Er að sýna heldur marga þessa sýninguna og verður því gott að byrja að æfa snemma.

Svo fór ég til Þórdísar minnar á laugardaginn fyrir rúmri viku og hún er með þessa hrikalega sætu hvolpa sem ganga undir nafninu Líf og Ófeigur!
Ég tók nokkrar myndir af þeim sem þið gætuð haft gaman að því að sjá ....

Ófeigur

Líf

Líf og Ófeigur

Líf og Ófeigur

Hrikalega sætir hvolpar... ekki satt ?!?!?!
Svo er hún Þórdís að para Fjólu bólu núna og ég get ekki beðið eftir að sjá þá hvolpa!!

Á laugardaginn síðastliðinn skrapp ég til Dísu á Akranes og það var svo sannarlega hundasnyrtingadagur hjá okkur.
Tókum alla hundana í gegn auk þess klippti ég einn Amerískan Cocker fyrir Petu vinkonu okkar Dísu ;)

Í gærkvöldi skilaði ég svo af mér Björkis pöntun og pantaði ég nokkrar nýjar vörur með til að prófa sjálf!
Finnst númer 1,2 og 3 að ég hafi reynslu af vörunni og ég sé ánægð með hana!
Ég pantaði að sjálfsögðu fullt af göngubeilsum og dráttarbeislum... en það nýja við beislin er að ég pantaði líka göngubeisli fyrir smáhunda.
Svo pantaði ég geggjaðar hálsólar líka til prufu. þær eru fóðraðar í æðislega fallegum litum og með endurskini. Handsaumaðar og sterkar eins og beislin.
Svo eru það taumarnir. Svartir taumar, sterkir og góðir og ég hlakka til að prófa þá!
Tvítauma pantaði ég líka, þeir eru náttúrulega frá Björkis eins og hinar vörurnar og eru þeir með endurskini.

Hlakka til að sýna ykkur myndir þegar ég hef fengið vörurnar í hendurnar... sem verður vonandi sem fyrst ;)

Brjálað að gera semsagt!

En í kvöld erum við að fara í matarboð til ömmu og afa og ég er að keyra út beislapöntun!

Endilega kíkiði á nýju heimasíðuna okkar og ekki gleyma gestabókinni !!

Bestu kveðjur,
Anna Francesca


12. janúar 2009 klukkan 18:04
Anna Francesca Rosudottir
9 athugasemdir
04janúar

Blissin 1 árs í dag;)

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Bliiiissss.
Hún á afmæli í dag Laughing

Jeeeeeeeyyyyyyyy !!!!

Hún elsku Blissikissikiss er eins árs í dag 4. janúar 2009!!

Læt myndirnar tala sínu máli ;)

Bliss

Bliss

Bliss

Bliss

Bliss og Joy

Bliss

Bliss

Bliss

Bliss

Bliss

Bliss

Bliss

Joy og Bliss

Bliss

Bliss

Í dag fórum við í góðan göngutúr í fjörunni, hundarnir fengu að busla í sjónum og skottast um að vild.
Fékk extra stóran skammt af mat og laaaanga kúrustund upp í sófa í dekri.

Bestu kveðjur og knús!
Anna og Blissikissikissi kiss!

04. janúar 2009 klukkan 23:12
Anna Francesca Rosudottir
8 athugasemdir
26desember

God jul ;)

Mikið ofboðslega líður tíminn hratt, ég ætla ekkert að fara að átta mig á því!

Joy orðin "rúmlega" eins árs og það styttist í árs afmælið hennar Bliss.
Hún Blissikyssin verður eins árs 4. janúar næstkomandi... þær eru að verða svo stórar þessar skvísur okkar!

Annars erum við bara í rólegheitunum að hlusta á sænska jólasöngva heima hjá ömmu hans Steinars.
Á aðfangadag var ég loksins komin í frí og við skötuhjúin sváfum bara út og fórum svo í göngu út á sanda. Við komum heldur betur sandbarin til baka enda var voðalegt rok.
Þegar við komum heim voru allir hundarnir settir í jólabað og svo kom að okkur Steinari að fara í jólabað þegar börnin voru orðin hrein og fín;)
Það tók heila þrjá umganga af sjampói að ná sandinum úr hárinu á mér en það hafðist á endanum.

Við fórum síðan í mat til tengdamömmu og ömmu hans Steinars.
Við fengum okkur léttreyktan lambahrygg mmm.. hann var hrikalega góður!
Ég heimtaði síðan að vaska upp... ekki út af góðmennsku heldur bara svo að það yrði gert það hratt og örugglega svo að ég gæti fyrr farið að rífa upp pakkana ;)

Við fengum alveg æðislegar gjafir í jólagjöf!
Steinar gaf mér hundarakvél frá Andis .... sem ég er í skýjunum með !!!
Óþolandi að vera alltaf að fá þetta í láni... og nú á ég mína eigin Laughing

Það er búið að vera brjálað að gera í hundasnyrtingunum og því alltaf gott að eiga sínar eigin græjur!
Bryndís og Bára eru búnar að vera svo yndislegar að lána mér sínar undanfarið!

Eftir matinn og pakkatætingarnar fórum við heim lambahryggs afganga og hundarnir fengu út á matinn sinn.
Síðan var bara setið upp í sófa yfir góðri kvikmynd og hundarnir fengu jólabeinið sitt.

Í gær var dagurinn tekinn með mikilli leti !
Fórum í smá göngutúr með hundana og skelltum okkur síðan aftur í fínu fötin og fórum í jólaboð til tengdapabba og konunnar hans.

Þannig í dag getur maður sagt að maður sé vel saddur!... en veislan er ekki búin því að í kvöld er það hamborgarahryggur og gotterý ;)

Á morgun er svo bara venjulegur dagur og ekki er það verra að það sé laugardagur! .... framlenging á fríi;)
Ég ætla að drífa mig í bæinn á morgun og keyra út beislapantanir. Skella mér svo í Pfaff og kaupa kamba á rakvélina.

Það er brjálað að gera í að svara fyrirspurnum fyrir Björkis og ég er búin að keyra út fjöldann allan af beislum!
Ég sé að ég þarf að setja saman aðra pöntun núna fljótlega!

Annars í dag fórum við Steinar og Katrín til með Champ og tokum mynd eftir hugmynd sem Steinar snilli fékk.
Fannst þetta hrikalega fyndið og vonandi að þið skiljið húmorinn á bak við auglýsinguna ;)

Auglýsing

Ég keyrði síðan Steinar heim til ömmu sinnar í Söru bakstur og við Katrín náðum í svörtu skvísurnar og tókum myndir af þeim og höfðum gaman!
Hefði viljað taka fleiri myndir en djöfulsins myndavélin varð batteríslaus !

En hérna kemur myndaserían...

Blissin litla með mömmunni sinni :)
Bliss


Svo þurfum við að vera duglegri að æfa að standa fín...
Bliss að standa


Það er ekki að ástæðu lausu að hún sé kölluð Blissi kyssin...
Blissin


Ég og Joy...
Joy


Joy er mikið duglegri að standa... en við þurfum klárlega að vera duglegri að æfa okkur!
Joy


Jæja, læt þetta nægja í bili og óska ykkur öllum gleðilegra jóla, þakka ykkur fyrir liðið og óska ykkur farsældar á komandi ári !

Bestu jólakveðjur,
Anna. Steinar og hundarnir !


26. desember 2008 klukkan 22:00
Anna Francesca Rosudottir
4 athugasemdir
19desember

Joy 1 árs í dag !

Í dag er Joy eins árs !

Tíminn er svo sannarlega búinn að líða svakalega hratt og mér finnst eins og það hafi verið fyrir svo stuttu síðan sem við fengum litlu óþekku snúlluna!

Litla músin okkar bara 6 vikna gömul
Joy


Joy litla að borða með systkynum sínum!.... sem eiga líka afmæli í dag heheh!

Joy


Og æfa sig að standa fín;)

Joy


Steinar ofboðslega ánægður með litluna sína!

Joy


Orðin aðeins stærri ;)

Joy


Systkynaknús...

Joy og Bliss


Standa fín... o svo dugleg 3 mánaða

Joy


Svo kann hún að hreyfa sig svo fínt

Joy


Orðin svo stór stelpa!

Joy


Og pabbi svoooo ánægður með stelpuna sína!

Joy


Og mamma líka!!

Joy


Svo er þessi elska svo dugleg að gera hlýðni æfingar og finnst hrikalega gaman æfa með pabba sínum!

Joy


Framtíðar veiðihundurinn að ná í Dummy!

Joy


Síðasta vikan í Svíþjóð!

Joy


Komin til Íslands og finnst hrikalega gaman að hlaupa í sjónum:D

Joy

Prinsessunni líður hrikalega vel á Íslandi og stækkar og stækkar ;)

Vonandi höfðuð þið gaman þessu myndasýningu... finnst myndir segja svo mikið !
En við erum alveg ofboðslega ánægð með hana Joy okkar og hlökkum til framhaldsins!

Best að fara að knúsa afmælisstelpuna;)

19. desember 2008 klukkan 22:00
Anna Francesca Rosudottir
7 athugasemdir

Joy og Bliss fara í augnskoðun!

Auglýsing

Fer til Svíþjóðar að dæma unga sýnendur

Heimasíðan okkar!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...